Leita í fréttum mbl.is

Bakverkur áááái

Hef ekki fengið í bakið í mörg ár.  Ekki síðan ég fór að lifa því lífi sem ég lifi í dag.  Komst að þeirri niðurstöðu að verkurinn var andlega tengdur.  Spurning hvort svo sé nú?  Mér finnst ég reyndar vera í mjög góðu formi andlega.  (Fyrir utan smá afturhvarf til fortíðar í ca hálftíma á fimmtudagskvöldið þegar Einar var ekki eins og ÉG vildi hafa hann...hann spurði mig blíðlega hvort ég vildi að hann keypti múl og beisli svo ég gæti haft hann í taumi...!!!LoL ég vildi það ekki!!!)

Hallast á að verkurinn sé mest eftirköst eftir að hafa sofið í 90 cm rúmi með Jóhannesi í heilan mánuð...fyrir utan 3 nætur...eina þeirra svaf ég með bæði Jóhannes og Jón Ingva í rúminu...og hinar tvær næturnar var Jón Ingvi með mér í rúminu...!!  Finnst ég hafa verið búin að blogga um þetta...en skítt "pyt".  

Stefni ennþá á sund á morgnana...en hef hreinlega ekki treyst mér að fara að synda meðan það ersund_800x600 svona mikið rok...kannski það sé bara léleg afsökun?  Hver veit.  Það á að fara að lægja eftir helgi...strax á morgun held ég reyndar, svo nú fer þessi afsökun að verða ógild.  

Svo held ég að það sé líka sárt fyrir bakið að sitja svona mikið eins og ég geri.  En veit ekki hvernig ég kemst hjá því meðan ég er að lesa og skrifa næstu 10 vikurnar eða svo...þannig að þið sjáið að sund hlýtur að vera málið!!!  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Glatað.  Bara eins og þetta var á Norðfirði í gamla daga...

SigrúnSveitó, 24.3.2007 kl. 16:17

2 identicon

Hæ frænka :)  Við Inga & Kolur stefnum á að taka rúnt á Skagann á morgun .. verður örugglega e-ð upp úr hádeginu.  Nema það geri ófært þá verð ég í bandi.  Bjalla annars í þig og fæ leiðbeiningar þegar við nálgumst :)

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 16:34

3 identicon

Nú ætla ég að prófa einhvern inni-kuldapoll (sundlaug) á mánudaginn með Valdimari. Hvet þig til að skella sér í sundið. Það er nú bara hluti af kikkinu að fá rokið og jafnvel slydduna beljandi á sig  Og mikið er þetta gullfalleg mynd af þér. Ég skellti upp úr og Helgi Gnýr vildi sjá hvað væri svona fyndið. Ég sagði honum að þetta væri bara kona að gretta sig og hann sagði "þetta er ekki kona"

Jóhanna (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 17:11

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Raggý, frábært, hlakka til að sjá ykkur öll

Jóhanna, verði þér að góðu...ojojoj danskar sundlaugar...að mínu mati, dóttir mín hefur aldrei látið það á sig fá þótt það hafi verið KALT vatn í þessum pollum...enda held ég að hún hafi verið hafmeyja í fyrra lífi!! 
Já, takk,  ég er alveg gullfalleg...ekki kona!!

SigrúnSveitó, 24.3.2007 kl. 17:46

5 identicon

Hæ hon.

Ótengt sundi : Langaði að senda þér uppskrift þar sem þú ert svo dugleg að deila þínum.

Kjúklingaréttu Tótu:

Sósa: 1 dós kókosmjólk, satay-sósa, karrímauk (sletta).

Kjúklingur: steiktur eða soðinn áður.

Grænmeti: paprika, ananas, sveppir, laukur.

Grænmeti steikt á pönnu. Sósugutlinu blandað saman á pönnu (pott), steikta grænmetinu og foreldaða kjúklingnum bætt út í og hitað.

Nauðsynlegt að hafa hrísgrjón með, jafnvel brauð og hrásalat.

Lilja Guðný (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 19:23

6 identicon

Og í eftirmat mælum við með þessu:

Uppskrift fyrir fjóra til sex:

4 bananar

100 g hveiti

25 g smjör - bráðið

125 ml. kókosmjólk

150 ml. ólífuolía

salt

Hrærið saman hveitinu, smjörinu, kókosmjólkinni og smá salti þar til komið er mjúkt deig. Bætið við smá vatni ef þarf. Skerið banana í helminga og skerið svo hvern helming langsum. Þekið hvern bananabita vel með deiginu og steikið í olíunni á pönnu, þrjá til fjóra bita í einu (eða eins marga og pannan rúmar ;-), í tvær til þrjár mínútur eða þar til bitarnir verða gylltir að lit. Hægt er að strá flórsykri yfir til skreytingar (sælkeranum mér finnst það möst). Borðið svo með vanilluís - heitt eða kalt (ég mæli með því að hafa þetta heitt).

Ég held að þetta sé indverskur eftirréttur - a.m.k. ekki íslenskur

Lilja Guðný (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 19:28

7 Smámynd: SigrúnSveitó

Tak sys.  Verð að prófa þetta.  Hljómar vel.  Set þetta í uppskriftalinkinn. 
Knús, S.

SigrúnSveitó, 24.3.2007 kl. 19:51

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað á það að þýða að sofa í svona litlu rúmi, það er bara mjög óhollt fyrir alla.  Fín uppskrift mig langar að einhver bjóði mér í mat.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.3.2007 kl. 22:18

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Góð spurning!!  Við vorum í "útlegð" í Danmörku í mánuð, gistum hjá vinafólki...hefði kannski getað fengið dýnu fyrir drengina...en hugsaði víst ekki út í það...sem verður víst að teljast heimska...

SigrúnSveitó, 24.3.2007 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband