Leita í fréttum mbl.is

Handbolti

handboltiþessi mynd er víst frá leiknum áðan.  Ég skal fúslega og með gleði viðurkenna að ég hef engan áhuga á handbolta (frekar en öðrum íþróttum...) og veit ekki hvað þessi ósigur íslendinga þýðir fyrir þá. Eru þeir dottnir úr leik?  

Dóttir mín hins vegar sat yfir leiknum og ég heyrði hana klappa og einhver önnur skringileg hljóð bárust líka...svona hljóð sem heyrast í fólki sem dettur inn í sjónvarpið og tekur fullan þátt í því sem er að gerast á vellinum.  Ég veit ekki alveg í hverju spennan hjá henni var samt fólgin þar sem hún hélt með báðum liðunum...!!!

Svo hennar lið sigraði, er óhætt að segja, og hefði líka verið hægt að segja það þótt "við" hefðum sigrað.  Gaman að þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Sigrún,

Kíkti á bloggið þitt og er auðvita kurteisin uppmáluð og kvitta.

Rúna - Valkyrja

www.valkyrjan71.blogspot.com

Rúna Valkyrja (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 21:49

2 Smámynd: SigrúnSveitó

hehe, takk fyrir það Gaman að svona kurteisu fólki!!  Það gætu margir lært eitthvað af þér

SigrúnSveitó, 30.1.2007 kl. 21:57

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Ok.  Spennandi...eða þannig...

SigrúnSveitó, 30.1.2007 kl. 22:40

4 identicon

Ferlegt að tapa þessum leik, mér er svosem skítsama um svona leiki og vissi einusinni ekki af þessu HM fyrr en í fyrradag, en það hefði bara verið svo gott á Dani, þeir eru búnir að vera svo kokhraustir og það hefði verið bömmer fyrir þá að vinna fyrir litla Íslandi sem er að kaupa allt upp hjá þeim blessuðum 

jóna (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 18:28

5 Smámynd: SigrúnSveitó

hehe, já, það er reyndar alltaf gaman að vinna dani, hvort sem er í fótbolta eða handbolta eða einhverju allt öðru.  Bara vegna þess hversu kokhraustir þeir eru...!!

SigrúnSveitó, 31.1.2007 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband