Leita í fréttum mbl.is

Það kom að því!!

Minn heittelskaði er kominn í framboð!! Jamm, ekkert minna en það.  

Hann hefur verið að verða æ pólitískari með hverju árinu, sérstaklega eftir að við fluttum heim frá Danmörku sumarið 2006. Svo hávær hefur hann stundum verið að ég hef sagt við, kannski meira í gríni en alvöru; "Afhverju ferðu bara ekki í framboð?!"

Í fyrrakvöld kom hann heim úr stuttri borgarferð, það var seint liðið á kvöld og ég sofnuð...var sko að fara að vinna í gær, laaaaangan vinnudag.

Þessi elska kom inn og vakti mig og sagði; "Hvernig litist þér á að vera gift frambjóðanda?"

Ég svaraði, eflaust mjög svefnþrunginni röddu; "Vel - ef það ert þú".

Jú, það var hann...svo sofnaði ég...held ég...Sleeping

Svo brunaði ég af stað í vinnuna við fyrsta hanagal, og var að detta inn í Mosó þegar ég mundi eftir þessu stutta samtali okkar um nóttina...seint um kvöldið...what ever...

Ég hringdi í hann og spurði; "Fyrir hvaða flokk??!!!" Ég þóttist nú reyndar vita svarið...en maður verður að vera viss!

Samfylkingin er það. Einar sem sagt býður sig fram í 3.-6. sæti í NV kjördæmi. Þarf ég að taka það fram að ég er núna gengin í Samfylkinguna?!!!

Í dag sendi hann mér til yfirlestrar, fréttatilkynningu. Ég las hana í flýti...eins miklum flýti og ég gat, því ég var svooooo stolt af honum, að ég var með kökk í hálsinum og tár í augnkrókunum. 

ebenHetjan mín InLove

Svo í dag brunaði hann af stað, framboðsfundir í kjördæminu!! 

Ég hlakka sannarlega til að taka á móti honum með koss þegar hann kemur heim. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært bara  :)

Hæ fæv!  ;)

eva ólafs~ (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 09:46

2 Smámynd: JEG

Hhahahaha ég sé þetta svo fyrir mér.  En frábært bara.  Ég kýs reyndar ekki því mér finnst valið ekki vænlegt hér og ekkert gerist þó maður kjósi.  Hinir hafa alltaf vinninginn í að stjórna.  En reyndar verður kosið núna á betri tíma en venjulega.  Því ég læt jú rollurnar ganga fyrir svo ég fái laun.  Þær bjarga sér ekki sjálfar meðan maður kýs.

Knús og kveðja úr sveitinni.

JEG, 27.2.2009 kl. 10:10

3 Smámynd: Tína

Til hamingju með eiginmanninn sæta. Og ef ég væri hann þá myndi ég nota þessa mynd sem hér er í auglýsingaherferð. En mér finnst þessi mynd vægast sagt æðisleg. Gangi honum sem allra best þó ég sé engin samfylkingarmanneskja. En hver veit................... kannski breytist það með nýju fólki í framlínunni.

Knús í þitt hús elskan

Tína, 27.2.2009 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband