Leita í fréttum mbl.is

"Siden sidst"

Best að koma með smá rapport um hvað hefur á daga mína drifið frá síðasta bloggi!

Við - ég og ungarnir - fórum í borgina og náðum að kaupa jóladressin á strákana og skó á skvísuna. En sama hvað við skoðuðum þá fann hún ekki það sem hana langaði í sem jólaföt. Mátaði einn kjól sem henni fannst svo ekki flottur þegar hún var komin í hann. Reyndar held ég að Ólöf Ósk hefði alveg gatað dólað sér í Smáralindinni ALLAN daginn í slow-motion...en það er ekki fyrir mig að dunda mér í verslunarferð og hvað þá fyrir strákana. Svo ég vona að hún geti fundið eitthvað á sig í okkar heimabyggð! Ætli það verði ekki næsta mál á dagskrá.

En þetta var fín ferð, og stákarnir stóðu sig vel, en þeir voru orðnir þreyttir í lokin. Magnað hvað svona stórcenter er mikill orkuþjófur. Ég þakkaði mínum sæla fyrir að minn heittelskaði var ekki með, því hann er alltaf fyrstur að tapa gleðinni í búðastússi Wink Svo það var miklu meira gagn í honum hér heima þar sem hann setti saman 2 skápa og límdi einn karm í! 

Í gær fórum við hjónin svo í tiltekt í óbyggðahlutanum, sem fljótlega verður ekki allur óbyggður lengur! Við fórum eina ferð á haugana og svo var kerran fyllt aftur...og það á eftir að fara aðra haugaferð! Við hentum, endurröðuðum, fluttum til og það voru ýmsar tilfæringar í gangi! Svo endaði Einar á að lakka eina umferð "ganginn" og lakkaði svo aðra umferð þegar hann kom heim af næturvakt í morgun! 

Nú vantar tvær hurðir í, í herbergið sem Jón Ingvi fer í og svo í gatið inn í óbyggðina (þaðan sem við sofum núna).  Ætli Einar setji ekki annan karminn í, í dag. Svo ætlar píparinn að koma, í síðasta lagi á föstudaginn, og græja fyrir þvottavélina og handklæðaofninn! Jamm, allt að gerast! 

Núna eftir smá er ég svo að fara á leikskólann að sjá Jóhannes leika í helgileik, hann leikur einn vitringinn InLove

Þangað til næst, yljið ykkur við þennan mola:

"Það er unnt að taka allt frá manninum nema eitt, endanlegt frelsi hans til að velja hvernig hann bregst við því sem að höndum ber, til að fara eigin leiðir."

- Viktor Frankl

 pimp myspace profile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér líkar vel þessi setning sem þú kemur með í færslunni.  Gott að allt er að verða klárt fyrir blessuð börnin, þetta er þeirra árstíð.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 10.12.2008 kl. 14:43

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Skil Einar svo vel að vera fyrstur til að tapa gleðinni í stórmörkuðum. Þeir eru skelfilegar orkusugur.

Knús á Skagann

Hrönn Sigurðardóttir, 11.12.2008 kl. 19:29

3 Smámynd: Tína

Vonandi finnur heimasætan eitthvað fallegt á sig svo hún fari nú ekki í jólaköttinn. Vonandi skemmti vitringurinn sér vel á sýningunni og ég efast ekki um að hann hafi staðið sig eins og hetja.

Kærleiksknús á þig vinkona góð.

Tína, 11.12.2008 kl. 23:35

4 Smámynd: JEG

Já það tekur á að fara í stórborgina og það til að gera jólainnkaupin úfffff tell mí abátit.....hehehe bara tekur vel á sko.

Knús og klemm og gaman að heyra að húsið gengur vel.  Vona að vitringurinn hafi gert lukku.  

JEG, 13.12.2008 kl. 00:48

5 identicon

Halló elskuleg .. ég les alltaf með aðdáun og samgleðstinnilega yfir hverjum áfanga sem næst í húsinu ykkar!  Þvílík harka og eljusemi .. og þið öll svo samstíga að klára hvert tímabil og flytja smátt inn í allt húsið.  Algjört þrekvirki.  Hlakka MIKIÐ til að geta skoðað e-rn tíman ölll herlegheitin og sérstaklega drauma þvottahúsið þiktt mín kæra ... skil þig svoooo vel :)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband