Leita í fréttum mbl.is

Ásdís mín, og fleira

Mig langar að benda ykkur á ÞESSA færlu hjá henni Ásdísi minni. Kona með stórt Heart á ferðinni hérna.

--

Ég er með ógeðsbragð í kjaftinum...við hjónakornin sátum ein að snæðingi áðan...fengum okkur ægilega fín, kofareykt sveitabjúgu... Jamm, ægilega gott...fyrstu bitarnir...þvílíkt FEITUR matur...og feitur matur fer illa í mína vömb!! Svo nú er ég með klýgju. Mig langaði allra mest að fara fram á wc og stinga puttanum ofan í kok...held ég borði ekki bjúgu í bráð...kannski bara aldrei aftur!

Er smám saman að minnka við mig dýrafituna því hún fer svo illa í mig. Borða magurt....en mér finnst rjómi og ostar bara OF gott...!!! En hver veit, kannski einn góðan veðurdag!

Jamm. Ætla að smella mér í sturtu, fór sko að æfa í morgun og er enn í æfingagallanum... Er sko byrjuð aftur og nú verður kraftur í kögglum! Í kjólin fyrir jólin, sjá tólin fyrir jólin...eða hvernig þetta var...LoL nei, svona í alvöru, þá finnst mér ég svo sem ekkert vera að farast úr fitu...en stundum fæ ég "feituna og ljótuna" og það er ekki gaman.  En mest er ég að þessu fyrir líkamann minn, fyrir bakið mitt.

Ok, bæjó, sturta NÚNA!!!

Knús... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir að benda á söfnunina mín kæra. Skil þig með bjúgun, geta verið full feit og bragðmikil.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 18:52

2 Smámynd: JEG

Ég borða bara kofareyktu sveitabjúgun mín. (made in sveitin)  Og þau eru oftast vel heppnuð hvað hlutföll varðar. Já maður ætti nú að skella á sig smá átaki svona fyrir sjálfan sig ekki bara kjólinn og jólin.

Knús úr sveitinni.

JEG, 12.8.2008 kl. 21:38

3 identicon

Bjúgu eru viðbjóðsleg, brr...skil vel að þér hafi orðið óglatt, dýrafita fer líka ílla ímig

Iss með feituna og ljótuna þær geta verið einhverstaðar annarstaðar. mér finnst þú svo passleg og svo sæt, sérstaklega eftir að þú lést klippa þig fer þér svooo vel og svo ertu líka með svo fallegt bros.

knús, ást og alles

jóna björg (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 22:18

4 Smámynd: Dísa Dóra

Bjúgu kallast á mínum bæ kransæðakítti - wonder why

Dísa Dóra, 13.8.2008 kl. 07:39

5 Smámynd: Tína

"Sjá tólin fyrir jólin"  Aldrei heyrt þetta en skemmtilegt er það. En falleg kona ertu af myndinni að dæma. Og vonandi fæ ég einhverntímann tækifæri til að sjá það með eigin augum.

Knús á þig fallegust .

Tína, 13.8.2008 kl. 08:19

6 identicon

Ummmmmmmmmmm heimagerð sveitabjúgu.Eru góð í minningunni

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 11:12

7 identicon

Hæ sæta. Mér finnst það mjög dularfullt hvernig ykkur datt í hug að fara að éta bjúgu

Valdís Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 11:12

8 identicon

Mmm mér finnst æðisleg kofareykt sveitabjúgu með hvítri sósu :D  hahaha  Hef þau reyndar ca einu sinni á ári í matinn og sá dagur var einmitt um daginn en þau verða seint talin til hollustu :)

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband