Leita í fréttum mbl.is

Sprengidagur

Jóhannes er heima í dag.  Þessi litli gormur sem borðar allan mat...nánast allan mat.  Því hann getur ekki hugsað sér að borða saltkjöt.  Konurnar hans í leikskólanum ráku upp stór augu í gær, þegar hann tilkynnti að hann yrði ekki í mat í gær því hann borðaði ekki saltkjöt!!  Takk fyrir!

Þar sem hann, eins og ég segi, borðar venjulega allan mat með bestu lyst, þá leyfði ég honum að vera heima í dag og sleppa við þetta.  Hann ætlar samt með mér upp í vinnu í dag...því mig langar geðveikt í saltkjöt og baunir!  Slafr...þetta er eiginlega það besta sem ég fæ!!!  Venjulega eldar Einar þetta, en nú er hann á næturvöktum, og fer svo á fund í bænum í kvella...svo það verður víst ekkert úr slíku.  Svo ég treysti bara að kokkurinn geri góða súpu...!!  

Við mæðgin röltum út í Curves í morgun.  Konurnar sem þar voru, voru yfir sig hrifnar af stubbnum mínum.  Þótti hann sérlega þægur og góður strákur, og svo spjallaði hann við þær yfir kaffinu.  Alger sjarmör ;)

En nú er kaffið lekið í gegn...svo ég ætla að kaffast smá... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mmmm, væri sko alveg til í saltkjöt í dag en það verður að bíða betri tíma. Vona bara að þú njótir þess. Jóhannes á eflaust eftir að læra á þetta síðar. Hér stöndum við á blístri eftir að hafa haldið bæði fastelavn og bolludaginn hátíðlegan á viðeigandi hátt 

Svo langar mig að spyrja þig hvort þú kannt e-ð íslenskt orð yfir "aktiv medborgerskab" þar sem þú ert næstum því jafn mikill Dani og Norðfirðingur.

Jóhanna (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 12:03

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Saltkjöt og baunir... nammi

Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.2.2008 kl. 12:16

3 identicon

Mmmmm saltkjöt er æði og ég fæ kartöflumús með þar sem ég borða ekki baunirnar.  Best í heimi að vera akkúrat í mömmu mat þessa dagana :-D   Inga er búin að telja niður síðan í síðustu viku svo það verður slafrað í sig í kvöld.  Njóttu dagsins sæta!

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 12:38

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís.  Ég væri alveg til í að slafra í mig baunum en ætla ekki að elda þær í dag.  Hafðu það gott með Jóhannesi þínum.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 12:45

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Æj hvað ég skil hann. Mér hefur aldrei fundist þetta neitt sérstakur matur og baunir..........- borða þær ekki!!

Þannig að hann gæti þess vegna verið í mat hjá mér á Sprengidag - krúttið ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 13:00

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Saltkjöt og baunir...bragðaðist vel, en súpan sem Einar gerir er sko MIKLU betri!!!  Bragðmeiri og bara betri.

Veit eiginlega ekki hvernig er hægt að þýða þetta, Jóhanna.  Og takk, ég er sko alger baun!!  Enda fædd í Baunaveldi og alles!

Jóhannes borðaði ekkert í hádeginu og er bara alsæll með það :) 

SigrúnSveitó, 5.2.2008 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband