Leita í fréttum mbl.is

Hitakrampar og magaæfingar

Mánudagur...Jóhannes heima í dag.  Hann er búinn að vera lasinn, var með háan hita um helgina.  Ég á svo erfitt með að þola þegar hann er með hita.  Vegna þess að þegar hann var 13 mánaða fékk hann hitakrampa og við héldum að hann væri að deyja...blár, stífur, sást bara í hvítuna í augunum...þetta virtist heil eilífð.  Síðan þá þarf ég alltaf að hafa hann hjá mér þegar hann er með hita, day AND night!!! 

Hann fékk aftur hitakrampa í febrúar á síðasta ári, þegar við vorum í Danmörku, ég og hann.  Það var óhugnanlegt, en ég var rólegri...amk á yfirborðinu...skalf og nötraði inn í mér.  

Þegar hann rankaði við sér var Ida, vinkona hans, grátandi.  Síðan þá hefur hann oftar en einu sinni sagt; "Mamma, ef ég verð lasinn þá fer Ida að gráta".  

Enginn hitakrampi um helgina, en hár hiti.  

Núna er hann mjög ferskur, og jafnvel hitalaus...er reyndar oftast ferskur þó hann sé með hita...

--

Ég og Gréta fórum að æfa í morgun, það er verið að pína okkur þvílíkt í æfingunum...stelpurnar sem þarna vinna eru alltaf að koma með nýjar og nýjar æfingar...með bolta...sem taka GEÐVEIKT á magavöðvunum...en ég er strax farin að sjá framfarir, æfingar sem ég gat með herkjum gert 4 sinnum fyrir viku fór ég létt með að gera 10 í morgun!!! 
Við sjáum fram á að vera mjög fitt eftir mjög stuttan tíma!!! Cool

--

Prjónaði tvo nýja hatta um helgina...einn svartann og einn vínrauðann...þeir eru í þæfingu as we speak!!!  Mjög spennó!  Þessi svarti á að vera afmælisgjöf til vinkonu minnar í Danmörku, sem verður fertug á miðvikudaginn.  

Vá, skrítið til þess að hugsa að vinir mínir séu að skríða í fertugt.  Hljómar eitthvað svo skringilega.  Ég man bara þegar þrítugt var far far away, og mér fannst það geðveikt gamalt!  Núna er ég sjálf 37 og hefur aldrei liðið betur.  Er í fínu formi, andlega og líkamlega.

Og vitiði hvað gerðist í morgun...fór út í bíl að sækja símann fyrir Einar...og þegar ég kom til baka flaug ég á hausinn í hálku...við útidyrnar hjá okkur...!!!  Meiddi mig bæði í hnénu og úlnliðnum...samt ekkert alvarlega.  Sem fékk mig strax til að vera þakklát fyrir að brjóta ekki á mér úlnliðinn...og rífa ekki liðþófann í hnénu!!!  

--

Jæja, best að kíkja í hrærivélina...ég meina auðvitað þvottavélina...og sjá hvernig þæfingin tókst!! (Það er sko bleikt vöffludeig frá í gær í hrærivélarskálinni...gott að prjónadótið mitt er ekki þar!!) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hef ekkert að segja vill bara láta vita af mér

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.1.2008 kl. 16:13

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Æjá! Hitakrampar eru skelfileg upplifun!!!

Gott að prjónadótið er ekki í hrærivélinni ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 21.1.2008 kl. 17:14

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

kvitt kvitt

man eftir grænu vöffludeigi heima hjá mér, það var skagamær sem steikti grænu vöfflurnar

Guðrún Jóhannesdóttir, 21.1.2008 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband