Leita í fréttum mbl.is

Alveg að verða of sein...

...til að blogga á 1. degi ársins!!

Það má ekki gerast!

Annars hef ég ekkert að segja.  Átti gott gamlárskvöld í vinnunni.  Mjög huggó, en samt buzy líka!  

Þegar ég kom heim voru Einar og krakkarnir að spila Matador.  Börnin voru að vonum, vonsvikin með veðrið í gær...rokið fór óvenju hratt yfir...svo þau fóru ekki út að skjóta.

Við fórum hins vegar áðan og skutum upp slatta.  Geymum restina fram á þrettándann!!  

Höfum aldrei eytt eins miklu í rakettur...keyptum fjölskyldupakka...og smá auka stjörnuljós...kostaði um 8000 krónur!!  Sumum þykir þetta eflaust lítið...en mér finnst þetta meira en nóg!

Jæja, held ég hætti núna svo ég nái að vista fyrir miðnætti!!!

Knús&kærleikur á línunaHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

náðir að blogga í tíma!

alveg sammála þér með flugeldakaup, ég sé alltaf eftir þúsundköllunum sem við brennum um áramótin, eina jákvæða er að björgunarsvetirnar fá smávegis fyrir sinn snúð.

Góða nótt í Guðs friði 

Guðrún Jóhannesdóttir, 2.1.2008 kl. 00:47

2 identicon

Gleðilegt ár mín kæra og takk fyrir það liðna. Gaman að sjá afmælisbarnið mitt hér á síðunni en verst að það komst ekki nokkur maður úr minni fjölsk.í boðið. Það var sko hjúts pottur af mexíkó súpunni góðu og með því .. ;) En svona er að búa á Íslandi, eintómt tjón með þetta veður ..

Verð annars í Borgó eitthvað næstu daga (veit samt ekki alveg hvernig það þróast) því afi gamli er svo lélegur...

kv.litla syss

Elín Eir (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 11:16

3 identicon

Gleðilegt árið Sigrún mín.

Takk fyrir þau gömlu.

 kveðja Halldóra og fjölskylda Danmörku

Halldóra Valkyrja í DK (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 11:36

4 Smámynd: Úrsúla Manda

Gleðilegt ár elsku Sigrún og fjölskylda. Þakka samveruna á árinu sem nú er liðið

Úrsúla Manda , 2.1.2008 kl. 15:18

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já ég er voða ánægð að vera hætt að kaupa flugelda. Læt duga að reikna út hvað aðrir brenna miklu

Ertu með netfang?

Hrönn Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 15:20

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

  Sæl skvís.  ÉG er hætt að kaupa flugeld en styrki samt björgunarsveitina, veit stundum ekki hvað við mundum gera án þeirra.  Kveðja á Skagann og ég vona að það fari að lægja.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 16:39

7 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Sæl Sigrún, gleðilegt ár til þín og þinna.

Ég þakka ánægjuleg samskipti á árinu, sjáumst um páskana fyrir austan (heima)

Ég kaupi flugelda með bros á vör enda góður málstaður. Læt ósagt hversu miklu ég eyddi!!! Ég þarf þá ekki að hafa samviskubit ef ég þarf á hjálp þeirra að halda.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 2.1.2008 kl. 16:57

8 identicon

Gleðilegt nýtt ár til ykkar allra kæra familía. Er sammála þér með flugeldakaupin, meiri vitleysan að vera eyða peningum í þetta. Þá er nú skárra að reykja, pakkinn dugar þó allavega rúman sólarhring en raketturnar eru stutt gaman:)

Vonandi sjáumst við sem fyrst.

Kveðja Slauga og familía

Áslaug Hanna (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 17:37

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ öll.

Það er alveg rétt, það er gott málefni að styrkja Hjálparsveitirnar/Björgunarsveitirnar.  Hér er reyndar IA sem er styrkt...  Svo sem líka gott málefni.  En mér finnst samt blóðugt að horfa á eftir peningunum upp í loftið...vil frekar gera eins og Ásdís, að styrkja þær á annan hátt...en börnin gleðjast mikið yfir þessu og gaman að gleðja þau líka.

Hrönn, ég er með netfang: sigrun[at]dengule[.]dk 

SigrúnSveitó, 2.1.2008 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband