Leita í fréttum mbl.is

Nenni ekki að blogga...

...en get samt sagt ykkur að Lilju-fiskurinn sló í gegn!!!

Lífið er ljúft, og ég er þreytt.  

---

Afmælisbarnið er:

Sirrý, gömul vinkona, sem er 44 ára í dag.  Við Sirrý brölluðum margt og mikið saman hér á árum áður.  Djömmuðum m.a. MIKIÐ saman árið 1994, en það ár "bjuggum" við á Café Amsterdam (sama stað (og tíma) og ég kynntist mínum heittelskaða á...).  

Við aðallega hlógum saman, en Sirrý slapp ekki við að leggja eyra og öxl til í ölllum mínu ástarveseni (lesist; "þráhyggjum"). 

Ég hef ekki hitt Sirrý síðan jólin 1997...úff, 10 ár!!!  En hver veit nema vegir okkar skarist fyrr en síðar?!!!!  Það væri nú gaman.

Held ekki að Sirrý lesi bloggið mitt...en samt; Til hamingju með daginn, elsku dúllan mín.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Þessar uppskriftir sem þú setur á bloggið þitt eru algjör draumur!! Megi jólín þín og þinna vera gleðileg og friðsæl og nýtt ár færa ykkur hamingju og gleði. Knús!!

Hugarfluga, 22.12.2007 kl. 22:13

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ef ég mundi elda allt sem þú setur á netið væri ég sko algjör fitubolla. Þú ert minnug á afmælisdaga, ég hélt að ég væri einstök í þeim málum en þú slærð mér algjörlega við. Jólaknús.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.12.2007 kl. 00:31

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk, Hugarfluga, sömuleiðis.

Ásdís.  Ég er mjög minnug á afmælisdaga en ég held að ég sé búin að finna einn sem er betri...og það er 7 ára gamall sonur minn!!!  Jólaknús á þig líka.

SigrúnSveitó, 23.12.2007 kl. 09:34

4 identicon

Takk elsku Sigrún

Jú ég les bloggið þitt og væri alveg til í að hitta þig við gott tækifæri.  Ég óska þér og þinni fjölskyldu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. 

Það var margt skemmtilegt brallað í þá gömlu góðu daga en ég held ég vildi ekki fara til baka, mér finnst lífið yndislegt eins og er, þó hitt hafi verið skemmtilegt á þeim tíma.

kveðja frá Selfossi,

Sirrý Páls

Sigríður Pálsdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 08:41

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Sirrý! Jiiiii, en gaman að þú komir hérna inn!!  Og já, ég er sannarlega sammála að þó þessi tími hafi verið skemmtilegur þá var þetta ekki vænlegt til framtíðar...ojojoj...hehe...!

Endilega hittumst við tækifæri!! 

SigrúnSveitó, 24.12.2007 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband