Leita í fréttum mbl.is

Viðburðarríkur dagur í gær

Mágkona mín, hún Salný útskrifaðist sem ljósmóðir í gær.  Elsku Salný, innilegar hamingjuóskir til þín með gærdaginn.  Vona að þú hafir átt ánægjulegan dag.

Dividers Easter Images

Svo er það hinn stóri viðburðurinn.  Það sem mér finnst stærst og mest í lífinu er tvennt: Þegar börn fæðast OG þegar tveir einstaklingar ákveða að játast hver öðrum og ganga í heilagt hjónaband. Ég veit fyrir mig að stærstu, yndislegustu og mikilvægustu dagar lífs míns voru þessir (í tímaröð, ekki mikilvægisröð): 28. október 1995, 1. ágúst 2000, 16. ágúst 2003 og 15. maí 2004.  

 

Í gær vorum við hjónin þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka þátt í brúðkaupi frænku minnar, Ragnhildar og hennar heittelskuðu Ingu.  Yndislegur dagur, svo falleg athöfn, svo fallegar konur sem þarna játuðust hvor annari.  Ástin skein langar leiðir.  Gerir það reyndar alltaf.  Það er svo gaman að bæði hitta þær og að lesa bloggið þeirra því það ljómar alltaf ástin og hamingjan í gegn.  Yndislegt alveg.

Verð að deila með ykkur mynd af þessum fallegu konum, um leið og ég enn og aftur óska ykkur, elsku Ragnhildur og Inga til hamingju með daginn.  Og njótiði lífsins og hvor annarar, í brúðkaupsferðinni og um ókomna tíð.

 

Inga og Raggý

 

Ljós og kærleikur til ykkar allra...nú ætla ég að fara og fagna Þjóðhátíðardeginum ásamt öðrum Skagamönnum (en höfum það samt á hreinu að ég er og verð; NORÐFIRÐINGUR!!!) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju til þessara fallegu kvenna sem standa svo fínar í hvítu !

Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Ljós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.6.2007 kl. 19:03

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Sömuleiðis.  Dóttir mín hafði á orði í dag að það væri skrítið að vera á Íslandi á 17. júní enda hefur hún fagnað Þjóðhátíðardeginum á Amager síðan áður en hún man eftir sér

SigrúnSveitó, 17.6.2007 kl. 19:25

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flottar skvísur að gifta sig, vonandi verða þær jafn lukkulegar og þú og ég kveðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.6.2007 kl. 20:48

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Ásdís, ég er eiginlega viss um að þær verða jafn lukkulegar og við. Þær eru eins og 'made for each other'.  Yndislegt að sjá.

Arna, ég tárast yfir ýmsu, m.a. brúðkaupum. En mér finnst það bara engin væmni.  Mér finnst bara yndislegt að gleðjast og eiginlega bara stolt ef það læðast nokkur tár (eða mörg) niður kinnarnar.

Já, Ella Pé, þetta var sko flott brúðkaup.

Nú eru þessar elskur væntanlega komnar í honeymúnið sitt

SigrúnSveitó, 17.6.2007 kl. 22:59

5 identicon

jeminn hvad thetta var saett skrifad hjá thér fraenka! :)  Thetta var algjorlega fullkominn dagur og yndislegt ad hafa nánast allt fólkid sitt hjá sér.  Vid erum algjorlega enn á bleiku skýi og erum komnar í sólina á njóta lífsins.   TAKK fyrir okkur og til hamingju med útskriftina thína ... eru thid ekki á leidinni út??   Aetla ad kíkja á myndirnar hjá ther ádur en netpeningurinn klárast :)   *knús&kram*

Frú Ragnhildur fraenka :) (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 18:27

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Elsku frú frænka.  Jamm, við erum að fara út núna á fimmtudag.  Reyni að blogga í ferðinni...amk eftir prófið og svona ;) Stefnt að útskrift 28. júní.  Þvílík sæla.

Knús til ykkar beggja

SigrúnSveitó, 18.6.2007 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband