Leita í fréttum mbl.is

HÆ ÖLL

Kunningjakona mín var að skilja og er að flytja í íbúð 1. maí.  Hún bað mig að koma þessu á framfæri:

Mig vantar ýmislegt og fjárhagurinn leyfir víst ekki "allt nýtt" þó það sé draumurinn (hvern dreymir svo sem ekki um það). Þætti mér vænt um ef þið vitið um fólk sem er að endurnýja innbúið eða bara eiga hluti sem það vill losna við, þá má alveg benda á mig sem góða hirðirinn, hvort sem hlutirnir eru gefins eða seldir (ódýrt). Strákurinn minn er 9 ára og stelpan 3 ára.
Eftirfarandi vantar mig sérstaklega:
 
- Borðstofuborð/ eldhúsborð og stóla (helst ljóst á litinn en skoða allt)
- Sófa, helst hornsófa eða tungusófa eða sófasett, skoða allt
- Ísskáp með frysti, svona tvískiptan, ísskáp að ofan og frystir að neðan
- Rúm fyrir strákinn (hann langar voða í svefnsófa)
- Rúm fyrir mig (breidd ca. 160)
- Hillur fyrir bæði börnin
- Skrifborð (og skrifborðsstól) fyrir strákinn
- Sjónvarp, vídeó og DVD
- Svefnherbergisskápa
- trip trap stól
- Lampa og ljós
 
 
Með fyrirfram þökk.
 
Endilega látið mig vita ef eitthvað er og ég kem skilaboðum áleiðis.  Hún er búsett í Reykjavík. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...ég á rúm á súlum úr IKEA heitir Tromsö - er 1.40 á breidd og 2 á lengd, undir því myndast gott pláss þar sem hægt er að hafa borð og stól eða dót..........það er silfurgrátt mjög vel með farið. Get látið hana hafa það á 20 þús. kall.

hilsen

Hrönn Sigurðardóttir, 30.3.2007 kl. 13:22

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk, kem þessu til skila :)

SigrúnSveitó, 30.3.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband