Leita í fréttum mbl.is

Mánudagsmorgun...

Jón Ingvi klikkar ekki í að vakna snemma.  Kl var ekki orðin 7 þegar minn maður skreið yfir til mín og sagði að hann gæti ekki sofið lengur.  Allt í lagi með það.  Við lágum og kúrðum í svolitla stund.  Gott að hafa molann minn hjá mér.  Jóhannes svaf, svo Jón Ingvi fékk alla athyglina án baráttu!  

Jóhannes er strax farinn að berjast.  Hann er vargur, hann vill mömmu sína!!!  Hann vill eiga mig aleinn.  Hann er búinn að gráta meira í dag en allar hinar 3 vikurnar samanlagt!!  Þarf lítið til þá volar hann. 

Jón Ingvi kvartar yfir að hann heyri illa.  Segir það vera vegna þess að pabbi hans hafi ekki hreinsað eyrun á honum meðan ég var í burtu...en hann er kvefaður líka...þarf sennilega að panta tíma hjá eyrnalækni fyrir hann.  Set Einar í verkefnið!!  Veit einhver hvort það sé langur biðtími eftir tíma hjá eyrnalækni????  MÖRG ár síðan ég hef farið til eyrnalæknis á Íslandinu góða.

Jæja, ætla út í garð og drekka kaffi og njóta þess að VORIÐ ER KOMIÐ OG GRUNDIRNAR GRÓA!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ sweety

Áttu tips um klæðnað sem er nauðsynlegur í DK núna? Við förum út á fimtud.morgun og verðum til sunnudags. Árshátíðarferð hjá Brynjari.Við verðum á Admiral hóteli við Nýhöfn.Þú talar um vor....naice :)  þýðir það að brynjar geti sleppt vetrarúlpunni og ég geti verið í flíspeysu á röltinu ???

heyrumst svo fljótt eftir að þú kemur heim og bið að heilsa Einari hinum aldraða  ;)

Elín Eir (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 11:47

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ, hon.

Eins og er, þá er ég í rúllukragapeysu og gollu og er að kafna úr hita...  Flíspeysa er örugglega súper, með síðerma-eitthvað innan undir.  Ég get ekki garanterað neitt en vetrarúlpa er of mikið í dag amk...

Einar hinn aldraði?  Finnst þér?!  Ég er gjörsamlega ósammála...en þegar ég var 27 þá fannst mér örugglega 38 mikið...

SigrúnSveitó, 12.3.2007 kl. 12:24

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Hvað með eyrnalækni?  Langur biðtími??

SigrúnSveitó, 12.3.2007 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband