Leita í fréttum mbl.is

Norðfjarðarblús

Stal þessari mynd á heimasíðunni hjá Þóru Elísabetu.  Vona að það sé í lagi...veit ekki hvort Þóra Elísabet les bloggið mitt...efast reyndar um það...en maður veit aldrei... 

Norðfjörður (úr Drangaskarði) En er þetta ekki fagur fjörður??!!! Myndin er tekin ofan úr svokölluðu Drangaskarði.  Þangað hef ég einu sinni komið.  Þegar ég var ung stúlka í skóla á Nobbarafirði (eins og pabbi kallar hann) þá var það siður (og er víst enn) að pína nemendur í göngu einu sinni að hausti.  Og það voru ekki einhverjar smá gönguferðir.  Nei, ungdómurinn skyldi arka á fjöll!!  Ég skal viðurkenna að ég gæti vel hugsað mér að stunda fjallgöngur í dag, og kem vonandi til með að geta það þegar búið er að krukka í hnéð mitt...en í þá daga var þetta ósvífni og pyntingarþörf skólayfirvalda að mínu mati.  En eitt haustið var farið upp í Drangaskarð.  Og kennararnir voru snjallir og sá þeirra sem fimastur var tók kladdann með á toppinn og sat þar og slappaði af og fékk undirskrift hjá nemendum sem flestir komu móðir og másandi á toppinn...ef þeir komu!!! 

Eitt haustið fór ég alls ekki alla leið.  Faldi mig bak við stein, ásamt fleirum, og laumaði mér í burtu og gerði eitthvað skemmtilegra þann daginn.  

En hver veit nema ég eigi eftir að komast aftur upp í Drangaskarð og hafa kannski ánægju af??!!! 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

váá .... flott mynd   Vonandi verður þú heppnari með hné-ástand eftir aðgerð .... held það verði langt í (ef e-rn tíman) að ég fari aftur í almennilega fjallgöngu

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 08:18

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Úff, já, ég vona það.  Ég bind miklar vonir við að verða eins og tengdamamma, hún fór í svona aðgerð fyrir örfáum árum og hún sprangar um fjöll og firnindi eins og ekkert sé...

SigrúnSveitó, 30.1.2007 kl. 12:57

3 identicon

Elsku Sigrún þér er sko velkomið að fá myndir lánaðar;)  Það er mjög gaman að lesa bloggið þitt og haltu áfram að vera svona dugleg að skrifa. kveðja Þóra E. http://blog.central.is/torabeta. nú byrjuð að blogga;)

Þóra Elísabet (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband