Leita í fréttum mbl.is

Mígreni

Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ég sé með mígreni. Ég fékk slæm höfuðverkjaköst fyrst þegar ég gekk með Ólöfu Ósk. Svo slæm að þau komu nánast daglega sumarið 1995 en ég var bara lánsöm að búa ein og vera ófrísk að fyrsta barni, því ég gat þá bara lagst fyrir eftir vinnu og reynt að jafna mig.
Eftir meðgönguna hurfu köstin. En bar á þeim síðar, eða í þessi 2-3 skipti sem ég bragðaði rauðvín - hætti þeirri vitleysu fljótt út af slæmum höfuðverkjum sem fylgdu í kjölfarið.

Svo komu þessi köst aftur þegar ég gekk með Jón Ingva en ekki þegar ég gekk með Jóhannes. Núna þegar ég sit og skrifa þetta þá velti ég því fyrir mér hvort líkaminn hafi sjálfur séð um að hafa vit fyrir mér því að þegar ég gekk með Jóhannes þá gat ég ekki með nokkru móti borðað neitt sem hveiti var í. En samkvæmt  Vísindavefnum þá getur hveiti haft áhrif á mígreni.

Ástæðan fyrir því að ég fór að "gúggla" mígreni, var að ég fékk svona kast í gær. Stuttu áður en ég átti að fara á kvöldvakt og sá fram á að þurfa að hringja mig inn veika 3 korterum fyrir settan vinnutíma Frown Ekki skemmtilegt. En ég fékk mér panodil og íbúfen og lagðist út af og hausverkurinn hvarf að mestu en eftir sat ógleðin. Svo ég fór í vinnuna, fékk þar primperan sem sló á ógleðina. Gat þannig staðið mína pligt Wink

Ég hafði fengið mér hrökkkex með brauðosti stuttu áður en höfuðverkurinn helltist yfir mig og fékk allt í einu sterkt á tilfinninguna að það væru tengsl. Samkvæmt áðurnefndum link á vísindavefnum þá er einmitt ostur nefndur til sögunnar ásamt hveiti, rauðvíni og fleiru. 

Svo hef ég oft hugsað sem svo að þetta væri vart mígreni þar sem mér nægir (oftast) að taka panodil og íbúfen - en samkvæmt þessum sama link þá er það svo hjá mörgum. Þannig að ég held bara að ég geti alveg leyft mér að kalla þetta mígreni.

Ég á eftir að sannreyna þetta með ostinn, en ég get í augnablikinu ekki hugsað mér að fá mér ost...svo þetta verður ekki sannreynt í dag og þá heldur alls ekki korter í kvöldvakt!!!

Jamm - fyrsta bloggfærslan mín í ca 1½ ár og vart um skemmtilegt efni en ég bara varð að koma þessu frá mér! Þetta væri helst til langur "status" á facebook LoL 

En til að halda í gamla "hefð" þá langar mig að koma með hamingjukorn dagsins: 

Hugurinn er heimur út af fyrir sig, og í sjálfum sér fær hann breytt himnaríki í helvíti og helvíti í himnaríki. 

- úr bókinni Þúsund hamingju spor


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Sigrún mín.

Ég kalla þetta líka mígreni, það er svipað hjá mér að ég get tekið paratabs og íbúfen og leggst aðeins útaf þá hverfur það nánast alltaf.

Ég hef reyndar ekki fundið út neitt sérstakt sem veldur þessu hjá mér nema þá helst vöðvabólgu/vöðvabólguhöfuðverk, sem leiðir oft til mígrenis ef ekkert er að gert.

Knús til þín krúttið mitt :)

Dóra (IP-tala skráð) 25.1.2012 kl. 14:11

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Knús á þig líka, mín kæra. Jamm, þetta er andstyggðarverkur og ef maður finnur orsakavaldinn þá er það snilld!

SigrúnSveitó, 25.1.2012 kl. 15:21

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

oss oss.... þú mátt kalla þetta mígreni mín vegna. Ég er bara glöð að þú bloggar :)

Hrönn Sigurðardóttir, 25.1.2012 kl. 21:43

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk Hrönn :) Ætla að sjá hvort bloggandinn sé að koma yfir mig aftur ;)

SigrúnSveitó, 26.1.2012 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband